Þór tæplega eins árs. |
Þrumuguðinn minn fagnar níu ára afmæli sínu i dag. Elsku karlinn minn sem svo rúðustrikaður og blíður í senn.
Hann er svo sannarlega ekki lengur litla barnið í fjölskyldunni, en hann á orðið þrjá yngri bræður! Honum farnast það hlutverk vel úr hendi eins og flest annað.
Allir á sama báti. |
Minn maður er alltaf með sitt á hreinu, alltaf.
Gísli; Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?
Þór; Atvinnumaður í fótbolta.
Gísli; En ef það klikkar? Þú verður að hafa varaplan.
Þór; Söngvari.
Gísli; En ef það klikkar?
Þór; Það klikkar ekki!
Frá Shellmótinu í Eyjum í sumar |
Elsku snúðurinn okkar, innilega til hamingju með daginn þinn.
No comments:
Post a Comment