Friday, October 5, 2012

Einn, tveir og byrja...


Las‘að í Samúel að október væri mánuður fyrir meistara. Dúddúrú! Ég ákvað samstundis að taka þátt án þess að vita nokkuð um hvað málið snýst, eða þannig. Líka svo góð „afsökun“ til þess að fara að blogga aftur, jibbíkóla!

Eníveis. Setti niður fyrir mér nokkur atriði sem ég get hugsað mér að leggja áherslu á í októbermánuði, sem líður alltaf hvað hraðast af öllum mánuðum ársins.
Hreyfing: Óóókei! Eftirað hafa séð áætlunina um hálfmaraþonið fara í norður og niðurfallið við ökklabrotið í júní vatt ég mínu kvæði í kross og hef ekki hreyft mig síðan. Bara ekki. Og bara af því ég nennti því ekki! Nú hins vegar gengur það ekki lengur af öllum ástæðum.
Ég ætla að hreyfa mig á einhvern hátt a.m.k. fimm sinnum í viku. En, af því ég er svo ógeðslega heppin að vera bæði þjálfari minn og keppandi í meistaradeildinni get ég ráðið því algerlega sjálf hvað ég geri.  Því ætla ég ekki að binda mig við ræktina ef mig langar ekki þangað, heldur er markmiðið aðeins að gera eitthvað þessa fimm daga. Það má vissulega fara í salinn og lyfta, líka fara út að hlaupa (awww), nú eða synda (oj, já ég veit), fara í box, sippa á pallinum eða bara annað sem manni dettur í hug. Sniðugt, sniðugt.
Mataræði: Aha. Óheppilegt mataræði hefur algerlega haldist í hendur við hreyfingarverkfallið sem ég hef verið í síðustu mánuði. Sumir horfa líka bara góðlátlega á mig, halla undir flatt, brosa blítt og segja; „Novv, þetta eru bara kærastakíló“. Já, réttast væri að kenna Gísla mínum um þetta allt saman, það er mjög góð lausn.
En. Það eru ekki alltaf jólin og í tilefni meistaradeildarinnar hef ég ákveðið að vera MJÖG hörð við mig í október.
Ég ætla að borða góðan morgunmat – hljómar kannski ekki flókið, en ég er ekki mikil morgunmatarmanneskja. Upp með byggið og grófu hafragrjónin!
Ég ætla ekki að borða nammi, snakk eða drekka gos – nammi er reyndar ekki vandamál, en það verður pínu erfitt að fá sér ekki kók í dós með pizzunni á föstudögum.
Ég ætla að halda brauði og öðrum kolvetnum í algeru lágmarki.
Ég ætla aðeins að drekka tvo bolla af kaffi á dag – það er ekkert mál heima en í vinnunni er ég alger kaffialki! Held eftir tveimur uppáhaldsbollunum mínum, „þegar pósturinn er að hlaðast inn á morgnana“ og eftir hádegismat. Annars bara te og grænt te.  
Ég ætla ekki að drekka áfengisdropa í októbermánuði. 
Húsnæðismál: Við – risastóra smáfjölskyldan er á götunni frá 26. október. Ég verð því að  finna okkur húsnæði, sama hvernig ég fer að því – þó svo ég þurfi að beita áður óþekktum brellum!
Fjárhagur: Fyrir utan að vera alltaf á rassgatinu eins og almenningur er þá ætla ég að vanda mig verulega í fjármálum í október OG nóvember. Ekki nóg með að jólin séu handan við hornið heldur erum við Gíslinn að fara til Birmingham í byrjun desember og ég hef óljósan grun um að ég þurfi að nota einhvern pjéning þar!
Í tilefni þessa ætla ég, við tvær aðrar, að selja fötin mín einhverntíman meðan á meistaradeildinni stendur. Alveg satt! 
Já krakkar, ég hef reimað á mig takkaskóna og er klár í meistaradeildina!

No comments:

Post a Comment