Bauð upp á mangókjúllann sem klikkar aldrei. Hefði að sjálfsögðu grillað í þessum 100 stiga hita, ef Gísli hefði ekki verið að lufsast í vinnunni. Ég snerti ekki grillið síðan það nánast sprakk framan í mig í fyrrasumar. Ætla hvorki að láta lífið eða missa hárið til þess að heilla tengdadóttluna þó ég sé nú voða hrifin af henni - þar dreg ég mörkin!
Annars var verkefni dagsins frekar einfalt, að liggja í sundi í hitabylgjunni - jah einhvernvegin verður maður að kæla sig krakkar. Líka morgundagsins. Ahhh.
No comments:
Post a Comment