Tuesday, October 21, 2014

Vanhæf móðir

Í það minnsta finnst mér ég vera það þessa dagana. Og vikurnar. Vanhæf móðir.  

Af hverju? Nú, ég ræð engan vegin við tæplega fimm mánaða gamlan son minn. Barnið sefur ekki, hvorki að nóttu né degi. Eins og einhverjir lásu hér fyrr í haust hélt ég úti einka-svefnkennslu fyrir Emil, en allt kom fyrir ekki. Já, bara alls ekki!

Er búin að reyna öll trixin í bókinni. Öll. Gefa ábót, gefa að borða, stytta dúra, færa dúra, snudda, rugga og sofa í öðru herbergi. Emil Gíslason varðar akkúrat ekkert um þetta vandamál. Hann bara heldur sínu striki og vaknar á 50 mínútna fresti á nóttunni og sefur kannski í tvo tíma yfir daginn með því að skrapa öllum ördúrum saman. Vaknar að vonum dragúldinn og pirraður og er eins og heftiplástur á mér allan daginn án þess að ég hafi nokkra innistæðu til þess að vera með hann stanslaust í fanginu. 

Hvernig má það vera að þessi draumfallegi og dásamlegi drengur sé svo baldinn?

Nú hugsa nýjir lesendur. Æji greyið, fyrsta barn ossonna, byrjunarhnökrar. Já, nei, nei. Litli púkinn er mitt fjórða barn. Vantar ekki reynsluna, er hokin. 

Hin voru reyndar svona líka, kol-vita-vitlaus fyrsta árið. Ástandið kemur mér því ekki á óvart en verð þó að viðurkenna að ég eygði örlitla von um að örverpið myndi hugsanlega haga sér. 

Bríet
Til dæmis um það fór ég með dóttur mína til barnalæknis þegar hún var tíu mánaða og spurði hann hreint út hvort mögulegt væri að barnið væri andsetið. Það fannst ekkert að henni, hún bara svaf ekki og var vansæl. Um sama leyti fór ég ásamt fleirum á fótboltaleik til Liverpool. Sofnaði yfir You never walt alone meðan aðrir grétu. Er líklega eini íslendingurinn sem hefur hrotið á Anfield.  

Á meðgöngu á ég sjálf við svefnvandamál að stríða. Gersamlega óþolandi. Ekkert að angra mig, nema ég bara sef ekki. Telst því til að ég sé ekki búin að ná djúpsvefni í átta eða níu mánuði. 

Svefnleysi hefur einnig alvarleg áhrif á geðheilsu og þráðurinn þessa dagana því hvorki langur né þykkur sem svo auðvitað bitnar á þeim sem síst skyldi. Er skíthrædd um að klessa algerlega á vegg einni daginn.

Get ekki meira. Er alveg pass. Svefntruflanir eru pyntingaraðferð í sumum fangelsum. Ég er ekki hissa, þetta er ógeðslegt. Vaknaði með hjartsláttartruflanir í vikunni vegna ofþreytu, Líður alla daga eins og ég hafi verið á blindafylleríi kvöldið áður. Finnst eins og ég með moð í hausnum og hangi í lausu lofti inn í sápukúlu. Man ekki neitt. Langar að láta leggja mig inn á sjúkrahús eða heilsuhæli og sofa og sofa. Þar til um jól. 

Ansi margir dagar fara fram á náttfötunum. 

Ekki misskilja mig - ég sé ekki sólina fyrir litla undrinu, en viðurkenni þó að ég myndi njóta enn frekar ef ég mér liði ekki eins og ég sé bara skynvilla. 

Hjálp. Ef einhver þekkir svona fígurugang í ungabörnum eru öll ráð vel þegin hér í kommentum, nú eða í skilaboðum á Facebook síðu bloggsins, sem ég hvet alla endilega til þess að "læka"

3 comments:

  1. Sé að þú hefur fengið mörg ráð, ég á því miður ekkert ráð þó ég hafi reynslu af allskonar svefnmálum barnanna minna. Langaði hinsvegar að segja þér að bloggið er kúl og skemmtilegt :)
    Við fórum með þristinn okkar til svefnhjúkkunnar á Landspítalanum um árið. Hún gaf okkur engin ráð sem við vorum ekki búin að prufa, en sama kvöld þá hætti hann öllu veseni. Ekki veit ég hvað það var, en við vorum algjörlega búin að gefast upp fyrir þessu, kannski var það uppgjöfin sem þurfti til. Hvað veit ég.

    ReplyDelete
  2. Ofnæmi fyrir brjóstamjólkinni?

    ReplyDelete
  3. Hei Kristín, ertu systir Bryndísar?

    ReplyDelete